Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Föstudagur, 23 maí 2025 13:50

Reykjagarður hf Kjúklingahús 2, Miðskógi Dalabyggð

Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir starfsemi Reykjagarðs hf  í Miðskógi Dalabyggð.  Kjúklingahús nr. 2.

Umsókn barst þann 20.maí 2025. Umsækjandi er Reykjagarður hf,  kennitala: 650903-2180. Umsækjandi fyrir hönd fyrirtækisins er Magnús Huldar Ingþórsson. 

Samkvæmt upplýsingum á umsókn er sótt um kjúklingaeldi : "  um er að ræða  nýtt kjúklingahús að Miðskógi, 371 Búðardal. Húsið hefur um 811 fm eldisrými og rúmar í eldi allt að 16.000 kjúlinga. Húsið er sömu gerðar og það sem byggt var í Miðskógi 2023."

Hér má sjá umsókn Reykjagarðs hf: umsókn  - ásamt fleiri gögnum listi með búnaði. "

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands stefnir á að gefa út leyfi til 12 ára. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998.

Starfsleyfisskilyrði munu byggja á efirfarandi almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir alifugla- og svínabú : Starfsleyfisskilyrði fyrir alifugla- og svínabú - 

Tillögu að starfsleyfi ber að auglýsa í 4 vikur á heimasíðu Heilbrigðiseftirlitsins, skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. 

Um starfsemina gildir einnig reglugerð nr. 520/2015 um eldishús alifugla, loðdýra og svína. 

Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.   fyrir 19. júní 2025.  

Read 32 times