Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Fimmtudagur, 05 febrúar 2026 16:48

Skipavík ehf. Stykkishólmi og Grundartanga- Auglýsing

Hér með eru auglýst drög  að starfsleyfi fyrir  Skipavík ehf.  á Nesvegi 20 í Stykkishólmi og Klafastaðavegi 2 Grundartanga.      Rekstraraðilinn er Skipavík ehf. 700175-0149. Umsækjandi fyrir hönd fyrirtækisins er Sævar Harðarson.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Umsókn um nýtt starfsleyfi barst 15. janúar 2026. Í umsókn fyrir starfstöð í Stykkishólmi er sótt um "  vélsmiðju, dráttarbraut, trésmíðaverkstæði, rafmagnsverkstæði og lager" en fyrir  Grundartanga rekstur Vélsmiðju.  Starfsemin hófst í Stykkishólmi upphaflega árið 1906, en flutti á Nesveg 20 árið 1967. Starfsemin á Grundartanga var keypt af Stálsmiðjunni árið 2022.  

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Umsókn frá Skipavík : 

Starfsleyfið mun byggja meðal annars á skilyrðum. Sjá hér:  Starfsleyfisskilyrði fyrir málmsmiðjur.pdf  og Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 8. mars 2026 

Read 2 times