Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Mánudagur, 12 maí 2025 15:57

Carbfix hf. jarðborun á Grundartanga- Auglýsing.

Umsókn um tímabundið starfsleyfi fyrir jarðborun á Grundartanga.

Carbfix hf., kt; 531022-0840,  sækir um tímabundið leyfi til borunar á niðurdælingarholu á Grundartanga. Umsókn barst í mars 2025 og hafa viðbótar gögn bæst við umsóknina síðan þá. Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir sækir um fyrir hönd fyrirtækisins.  Í umsókn kemur m.a. fram að  “fyrirtækið  sérhæfi sig í föngun og geymslu koldíoxíðs í jarðlögum. Holan er áætluð 1480 m djúp og verður hún fóðruð niður á 350 metra. Áætluð hnit holur eru: X: 364900.615; Y431579.343; Z: 21.59. Carbfix er þátttakandi í rannsóknarverkefni við Grundartanga þar sem fyrirtækið ætlar að reyna að fanga koldíoxíð frá Elkem og dæla því niður til varanlegrar geymslu í jarðlögum. Borað verður með vatni til að auka líkur á að lekt jarðlaga verði ekki skert. Gera má ráð fyrir að borverkið við hverja holu taki í heild í kringum 40 daga með flutningi á borbúnaði. Borun getur þó dregist ef ófyrirsjáanlegir erfiðleikar verða í borun. ÍSOR var Carbfix til ráðgjafar um staðsetningu rannsóknarholunnar. Fjöldi grunnra vatnshola er fyrir á svæðinu, en engar djúpar holur og því ljóst að mikil þekking mun fást með borun. Borholan mun leiða í ljós eðliseiginleika bergsins t.d. lekt auk þess að gefa upplýsingar um grunnvatnskerfin og dýpi á jarðsjó. Carbfix fær affallsvatn frá Elkem til að bora holuna en ef það vatn nægir ekki til að klára borverkið verður vatn nýtt úr stöðuvatninu Eiðisvatni.  Áætlað er að  nýta á bilinu 2-500 rúmmetra af vatni úr Eiðisvatni yfir þann tíma sem það tekur að bora holuna sem eiga að vera 3-4 vikur. “.

Veðurstofan er að vinna að gerð áhrifamats fyrir Eiðisvatn vegna verkefnisins.  Drög starfsleyfis fyrir Carbfix hf. eru auglýst með þeim fyrirvara um að áhrifamat fyrir Eiðisvatn sýni að vatnstakan hafi ekki áhrif á umhverfismarkmið Eiðisvatns (vatnshlotið 104-332-L).

Leyfi fyrir jarðborunum og viðgerð á borholum  er gefið út skv.  lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998 og ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur  skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, X-viðauki grein 10.4. 

Starfsleyfi mun byggja í grunnatriðum á almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar:  Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is) 

 

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 9. júní 2025.

Read 43 times