Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Fimmtudagur, 24 febrúar 2022 16:31

Eldneytisdæla á bryggjunni á Akranesi - Olíuverslun Íslands - Auglýsing.

Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir eldneytisdælu á bryggjunni á Akranesi. Rekstraraðilinn er  Olíuverslun Íslands,  kt 500269-3239. Umsækjandi fyrir hönd fyrirtækisins er  Örn Franzson.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Umsókn um endurnýjað starfsleyfi barst 21. febrúar 2022.  Í umsókn er sótt um " Bryggjuafgreiðslu á Akranesi".   Einnig kemur fram að  við dæluna sé 7500 lítra ofanjarðartankur með yfirálagsvörn. Rýrnunareftirlit er gert reglulega og telst hluti af lekaeftirliti. 

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Starfsleyfið mun byggja meðal annars á Almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi. Sjá hér: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is)

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 24. mars 2022.

Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.

Read 489 times