Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Þriðjudagur, 14 desember 2021 13:43

Smiðjan Fönix ehf, vélaverkstæði - Smiðjuvegur 6, Rif

Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir vélaverkstæðið "Smiðjan Fönix" að Smiðjugötu 6, Rif. Rekstraraðilinn er Siðjan Fönix,  kt 660906-0100.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Umsókn um nýtt starfsleyfi barst þann 1. desember 2021. Í umsókn er sótt um " vélaverkstæði" þar sem er almennar viðgerðir á vélum eru gerðar.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Starfsleyfið mun byggja meðal annars á Almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi og Starfsleyfisskilyrðum fyrir vélaverkstæði, sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar. Sjá hér: Almenn starfleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi og Starfsleyfi fyrir vélaverkstæði.

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 11. janúar 2022.

Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.

Read 590 times